Fotbolti.net
03.02.24 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Dean Holden nýr aðstoðarmaður Gerrard (Staðfest)

Dean Holden nýr aðstoðarmaður Gerrard (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Dean Holden, fyrrum leikmaður Vals, var í gær ráðinn sem nýr aðstoðarmaður Steven Gerrard hjá Al Ettifaq í Sádi-Arabíu.
Áhugamenn um íslenskan fótbolta ættu að kannast við Holden, sem spilaði með Val á láni frá Bolton Wanderers sumarið 2001.

Hann lék alls níu leiki í deild- og bikar áður en hann snéri aftur til Bolton.

Holden hefur mikla reynslu úr þjálfun. Hann var aðstoðarmaður Lee Johnson hjá Bristol City áður en hann tók við liðinu tímabilið 2020-2021 eftir að Johnson var rekinn.

Einnig hefur hann stýrt Oldham, Stoke City og Charlton Athletic, en nú er hann mættur til Sádi-Arabíu að aðstoða Steven Gerrard hjá Al Ettifaq.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.