HK fær varnarmann úr bandaríska háskólaboltanum (Staðfest)

Mynd: HK

Mynd: HK

HK er búið að krækja sér í 23 ára varnarmann úr bandaríska háskólaboltanum sem er búin að útskrifast úr háskólanum í Alabama.
Varnarmaðurinn heitir Asha Zuniga og mun hún ganga til liðs við HK í mars og keppa með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.
Asha býr yfir miklum hraða, er sterk í loftinu og tæknilega góð, auk þess að búa yfir miklum leiðtogahæfileikum. Hún var valin besti varnarmaður ársins 2022 í suðurhluta bandaríska háskólaboltans og er HK því að fá hörkugóðan leikmann til liðs við sig.
„Við erum virkilega ánægð. Asha er öflugur leikmaður sem styrkir okkar hóp. Það að hún hafi valið að ganga til liðs við okkur sýnir metnað félagsins til að gera vel og einnig þá trú sem hún hefur á okkar vegferð," segir Guðni Þór Einarsson þjálfari HK.
Asha er ekki einungis sterkur varnarmaður en hún er einnig markheppin og skoraði mikilvæg mörk á dvöl sinni í Alabama.