Slóvenskur kantmaður í Grindavík (Staðfest)

Matevz Turkus.

Mynd: NK Fuzinar

Matevz Turkus.

Mynd: NK Fuzinar

Slóvenski kantmaðurinn Matevz Turkus er genginn í raðir Grindavíkur og mun spila fyrir félagið í sumar.
Turkus er 24 ára Slóveni sem var fyrirliði NK Fuzinar á síðasta tímabili. Hann er hægri kantmaður sem á leiki fyrir unglingalandslið Slóveníu. Á ferli sínum hefur hann einnig spilað í Austurríki. Hann varð slóvenskur bikarmeistari árið 2018 með uppeldisfélaginu Olimpija Ljubljana.

TENGT EFNI
Króatískur miðjumaður í Grindavík (Staðfest)
Hann er einn af þremur erlendu leikmönnum sem eru að ganga í raðir Grindavíkur.
Turkus er búinn að fá leikheimild, eins og króatíski miðjumaðurinn Josip Krznaric. Núna bíður félagið eftir leikheimild fyrir Eric Vales, sem er 23 ára gamall miðjumaður frá Andorra.
Leikmennirnir þrír eru allir hjá SC3 Football Management umboðsskrifstofunni. Það er sama umboðsskrifstofa og er með Vardic og Edi Horvat sem léku með Grindavík í fyrra.
Brynjar Björn Gunnarsson er áfram þjálfari Grindavíkur en liðið hafnaði í sjötta sæti Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili.