Fotbolti.net
05.02.24 - 17:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ivo Braz í portúgölsku C-deildina (Staðfest)

Ivo Braz í portúgölsku C-deildina (Staðfest)
Canon

Mynd: Raggi Óla

Lengjudeildin
Ivo Braz, sem kom til Íslands fyrir síðasta tímabil og lék með Ægi og Aftureldingu, hefur fengið félagaskipti til AD Fafe í Portúgal.

Braz er portúgalskur sóknarsinnaður miðjumaður sem átti mjög gott tímabil í Lengjudeildinni í fyrra.
Hann skoraði sjö mörk fyrir Ægi og fimm mörk fyrir Aftureldingu sem fékk hann yfir í lok sumargluggans.

Alls skoraði hann því tólf mörk í 25 leikjum.

Hann er 28 ára gamall og skrifar samkvæmt Transfermarkt undir hálfs árs samning við AD Fafe.

Liðið er sem stendur í sjötta sæti deildairnnar, þremur stigum frá umspili um sæti í næst efstu deild í Portúgal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.