Fotbolti.net
06.02.24 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Markús Máni í Víði (Staðfest)

Markús Máni í Víði (Staðfest)
Canon

Mynd: Víðir

Víðir í Garði hefur styrkt leikmannahóp sinn fyrir komandi átök en Markús Máni Jónsson er kominn til félagsins frá Árbæ.
Markús Máni er 21 árs gamall sóknarmaður sem skoraði 9 mörk í 20 leikjum með Árbæingum í 3. deildinni síðasta sumar ásamt því að leggja upp nokkur.

Hann spilaði áður með yngri flokkum Fylkis og lék þá þrjú tímabil með Elliða í 3. deild ásamt því að spila einn leik með Þrótti Vogum í Mjólkurbikarnum.

Markús er nú búinn að færa sig yfir í Víði og mun því spila með liðinu í sumar.

Víðir hafnaði í 4. sæti deildarinnar á síðasta tímabili, aðeins fjórum stigum frá því að komast upp um deild.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.