Fotbolti.net
05.02.24 - 18:20
Brynjar Ingi Erluson

Nathan Jones er nýr stjóri Charlton (Staðfest)

Nathan Jones er nýr stjóri Charlton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Velski þjálfarinn Nathan Jones var í gær ráðinn nýr stjóri Charlton Athletic í ensku C-deildinni.
Jones stýrði Southampton í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en hann tók við liðinu í nóvember og var látinn fara tæpum fjórum mánuðum síðar eftir slæmt gengi.

Áður stýrði hann Luton Town og Stoke City auk þess sem hann var bráðabirgðastjóri Brighton árið 2014.

Jones er nú kominn með nýtt starf en hann er tekinn við Charlton Athletic.

Hann tekur við starfinu af Michael Appleton, sem var rekinn í síðasta mánuði eftir að hafa farið í gegnum tólf leiki án sigurs.

Charlton er í 19. sæti ensku C-deildarinnar með 31 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.