Caroline Murray snýr aftur til Íslands (Staðfest)

Caroline Murray í leik með FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Caroline Murray í leik með FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bandaríski bakvörðurinn Caroline Murray hefur gengið til liðs við Þrótt og mun leika með liðinu í sumar.
Caroline hefur áður leikið á Íslandi en hún lék með FH sumarið 2017. Hún spilaði þá 18 leiki með liðinu þegar það endaði í sjötta sæti Bestu deildarinnar og skoraði hún þrjú mörk.
Hún hefur undanfarin ár leikið í efstu tveimur deildunum í Svíþjóð og næst efstu deild í Danmörku.
„Caroline er kraftmikill leikmaður með mikla reynslu sem á eftir að nýtast Þróttaraliðinu vel í sumar. Bjóðum hana velkomna í Þrótt," segir í tilkynningu úr Laugardalnum.
Þróttur hafnaði í þriðja sæti Bestu deildarinnar á síðasta tímabili en eftir leiktíðina áttu sér stað stórar breytingar hjá félaginu þegar Nik Chamberlain lét af störfum og Ólafur Kristjánsson tók við.
Caroline er annar leikmaðurinn sem Þróttur fær eftir að Ólafur tók við en áður hafði Þróttur krækt í markvörðinn Mollee Swift frá Bandaríkjunum.