Aurier og Vinicius til Galatasaray (Staðfest)

Carlos Vinicius er farinn til Tyrklands

Mynd: EPA

Carlos Vinicius er farinn til Tyrklands

Mynd: EPA
Tyrkneska félagið Galatasaray hefur staðfest félagaskipti tveggja leikmanna, þeirra Carlos Vinicius og Serge Aurier.
Vinicius er 28 ára gamall sóknarmaður sem kemur á láni frá Fulham út tímabilið.
Ekki kemur fram hvort Galatasaray sé með kaupákvæði í samningnum.
Fílabeinsstrendingurinn Serge Aurier kemur frá Nottingham Forest fyrir 800 þúsund evrur, en samningurinn gildir út tímabilið. Hann er 31 árs gamall hægri bakvörður og kom að tveimur mörkum í tólf leikjum sínum með Forest fyrri hluta tímabilsins.
Galatasaray er í harðri titilbaráttu við Fenerbahce og getur með sigri í dag náð þriggja stiga forystu á toppnum.

???????????? Official, confirmed. Galatasaray sign both Carlos Vinicius from Fulham and Serge Aurier from Forest.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) February 2, 2024
???????? Carlos Vinicius on loan for €1.2m total fee & salary coverage.
???????? Aurier, permanent move for €800k total package on contract until June — then he’ll be free agent. pic.twitter.com/jW3z644Lra