Fotbolti.net
05.02.24 - 11:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Neil Warnock búinn að fá nýtt starf (Staðfest)

Neil Warnock.

Neil Warnock.

Canon

Mynd: Getty Images

Neil Warnock er ekkert á þeim buxunum að hætta í fótbolta strax þrátt fyrir að vera orðinn 75 ára gamall.
Warnock: Ákváðu að ráða fábjána frekar en mig
TENGT EFNI

Warnock: Ákváðu að ráða fábjána frekar en mig

Warnock var hættur að vinna þegar hann samþykkti að taka við Huddesfield í febrúar á síðasta ári en hann lét svo af störfum þar í upphafi þessa tímabils.

Þá veltu því margir fyrir sér hvort að hann væri hættur að þjálfa, en svo er ekki.

Breskir fjölmiðlar sögðu frá því um liðna helgi að Warnock væri að taka við sínu fyrsta starfi utan Englands og Wales en hann er að taka við sem stjóri Aberdeen í Skotlandi.

Warnock hefur áður talað um það að vera mikill aðdáandi skoska fótboltans en hann er stuðningsmaður Rangers. Hann fær nú tækifæri til að stýra liði í skoska boltanum.

Uppfært: Aberdeen hefur staðfest að Warnock hafi verið ráðinn stjóri út tímabilið. Liðið er í áttunda sæti af tólf liðum í skosku deildinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.