Ariela Lewis og Sigrún Guðmunds í Aftureldingu (Staðfest)

Ariela

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Sigrún Guðmunds.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding tilkynnti á dögunum um komu tveggja leikmanna til félagsins og um framlengingu á einum samningi. Afturelding er að undrbúa sig fyrir komandi átök í Lengjudeildinni.
Ariela Lewis er komin til félagsins og leikur með liðinu í sumar. Hún kemur frá Gróttu þar sem hún skoraði 29 mörk í 37 leikjum síðustu tvö tímabil. Þar áður lék Ariela með háskóla liði Alabama State í Bandaríkjunum og að loknum háskóla hélt Ariela frá Bandaríkjunum til Svíþjóðar þar sem hún lék tvö tímabil.

„Ariela er leikmaður sem býður þér upp á svo margt á vellinum, markaskorun hennar talar sínu máli en vinnusemi hennar til að hjálpa og búa til fyrir liðsfélaga sína er ómetanlegt. Leikmenn einsog Ariela eru alltaf mjög mikilvægir liðum sínum og við getum ekki beðið eftir að hún komi til landsins og komist í takt við liðið. Það er virkilega spennandi að sjá Arielu koma inn í núverandi hóp leikmanna sem við höfum nú þegar hjá félaginu og sjá hana á vellinum í rauðu í sumar!" sagði Perry Mclachlan þjálfari Aftureldingar.
Sigrún Guðmundsdóttir er einnig komin í Aftureldingu en hún var fyrirliði Augnabliks á síðasta tímabili. Sigrún er fædd árið 2004 og hefur leikið 48 KSÍ leiki og skorað eitt mark með Augnablik.
Á síðasta tímabili var Sigrún fyrirliði Augnabliks en hún er uppalin hja Breiðabliki.
„Ég er mjög ánægður með að Sigrún Guðmundsdóttir bætist við hópinn, ungur leikmaður með frábæra knattspyrnu hæfileika. Hún hefur komið vel inn í hópinn og hrifið teymið með sinni frammistöðu, okkur hlakkar mjög mikið til að sjá hana halda áfram að þróa sinn leik á komandi sumri," sagði Perry.
Þá tilkynnti Afturelding að Sigrún Eva Sigurðardóttir hefði skrifað undir nýjan tvggja ára samning. Sigrún Eva gekk til liðs við Aftureldingu fyrir tímabilið 2022 frá uppeldisfélagi sínu ÍA og lék með Aftureldingu sama ár í Bestu deild kvenna. Sigrún Eva hefur gegnt lykilhlutverki í liði Aftureldingar síðustu tvö ár.
Sigrún er fædd árið 2002 og hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið 146 KSÍ leiki og skorað í þeim 11 mörk, Sigrún er að upplagi miðjumaður en getur leyst hinar ýmsu stöður þar sem hún er einkar fjölhæfur leikmaður.
„Sigrún Eva er frábær knattspyrnukona, hún er okkur mjög mikilvæg í uppbyggingu liðsins og er stór persónuleiki innan hópsins. Sigrún tekur mikið til sín á miðjunni og er ekki bara gædd hæfileikum með boltann heldur býr hún yfir miklum leikskilning. Við gætum ekki verið ánægðari að hún hafi ákveðið að halda áfram hér með Aftureldingu!" sagði Perry.