Loic Ondo í Hvíta riddarann (Staðfest)
Hvíti riddarinn vinnur hörðum höndum að því að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi átök í 3. deildinni, eftir að hafa bjargað sér frá falli í fyrra.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25147 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Hvíti riddarinn vinnur hörðum höndum að því að styrkja leikmannahópinn sinn fyrir komandi átök í 3. deildinni, eftir að hafa bjargað sér frá falli í fyrra.
Þróttur R. hefur gengið frá kaupum á Sigríði Theód. Guðmundsdóttur frá Val, en Sigríður er fædd 2005 og spilaði með Selfossi og Val í Bestu deild kvenna í fyrra.
Jón Jökull Hjaltason er búinn að gera tveggja ára samning við Þór eftir að hafa spilað með ÍBV og KFS í fyrra.
Það voru að eiga sér stað óvænt félagaskipti í Bestu deild kvenna því Shaina Ashouri hefur yfirgefið herbúðir FH og er gengin í raðir bikarmeistara Víkings. Shaina var lykilmaður í liði FH sem kom mjög á óvart í Bestu deildinni á síðasta tímabili.
Færeyski framherjinn Martin Klein Joensen er farinn frá Njarðvík eftir stutta dvöl en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Kantmaðurinn Nikola Dejan Djuric hefur fengið félagaskipti frá Þrótti Vogum í Hvíta riddarann.
Breiðablik staðfesti í dag að danski miðvörðurinn Daniel Obbekjær sé genginn í raðir félagsins og gert samning út næsta ár. Hann er 22 ára gamall á árinu og hefur spilað í Danmörku, Kanada og Færeyjum.
ÍH hefur verið að gera áhugaverð félagaskipti að undanförnu en margir reynslumiklir leikmenn hafa samið við félagið. Má þar nefna Alexander Veigar Þórarinsson sem er með mikla reynslu úr efstu og næst efstu deild. Hann spilaði fjóra leiki með Grindavík í Lengjudeildinni á síðasta tímabili.
Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við miðvörðinn José Manuel López Sánchez um að leika með liðinu í sumar.
Sóknarmaðurinn Sigurður Bjartur Hallsson er búinn að skrifa undir hjá FH en félagið kaupir þennan sóknarmann frá KR. Hann mætti á sína fyrstu æfingu með FH í gær og fer í æfingaferð með liðinu á föstudag. Heimir Guðjónsson staðfestir þetta í <a href="https://www.dv.is/433/2024/3/5/sigurdur-bjartur-buinn-ad-skrifa-undir-hja-fh-heimir-las-thad-netinu-ad-hann-vaeri-til-solu/" target="_blank">samtali við 433.is</a>.
Guðmundur Baldvin Nökkvason er kominn aftur í Stjörnuna frá sænska félaginu Mjällby á láni.
Stjörnumenn hafa samið við ungan og efnilegan leikmann en sá heitir Ðuro Stefan Beic og kemur frá Sindra frá Höfn í Hornafirði.
Danska félagið AGF hefur staðfest kaup á Tómasi Óla Kristjánssyni frá Stjörnunni en hann skrifaði í gær undir þriggja ára samning við félagið.
Varnarmaðurinn Kostyantyn Pikul hefur samið um að leika með Þrótti Vogum til næstu tveggja ára en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Vestri á Ísafirði hefur staðfest að félagið sé búið að semja við sænska markvörðinn William Eskelinen. <i>„William er stór og reynslumikill markvörður og hefur hann meðal annars leikið í efstu deildum Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur. Á síðasta tímabili var William aðalmarkvörður Örebro í Superettan í Svíþjóð. William er væntanlegur til landsins í vikunni og er spenntur að hefja undirbúning fyrir komandi tímabil. Við bjóðum William velkominn og hlökkum til að sjá hann í Vestra treyjunni,"</i> segir í tilkynningu félagsins.
<p>Norski framherjinn Benjamin Stokke er genginn til liðs við Breiðablik. Hann gerir samning út þetta ár.</p>
Bosníumaðurinn Toni Tipuric hefur samið við Ægi um að leika með liðinu í sumar, en hann kemur til félagsins frá Dalvík/Reyni.
Theodór Elmar Bjarnason mun bera fyrirliðabandið hjá KR í sumar en félagið greinir frá þessum tíðindum í dag.
<p>Eric Dier hefur framlengt samning sinn við Bayern. Samningurinn gildir út tímabilið 2025.</p>
<p>Elvý Rut Búadóttir er gengin til liðs við Gróttu frá Fjölni en hún gerir tveggja ára samning við félagið.</p>