Fotbolti.net
06.03.24 - 15:54
Hafliði Breiðfjörð

Daniel Obbekjær í Breiðablik (Staðfest)

Daniel Obbekjær er orðinn leikmaður Breiðabliks.

Daniel Obbekjær er orðinn leikmaður Breiðabliks.

Canon

Mynd: Breiðablik

Breiðablik staðfesti í dag að danski miðvörðurinn Daniel Obbekjær sé genginn í raðir félagsins og gert samning út næsta ár. Hann er 22 ára gamall á árinu og hefur spilað í Danmörku, Kanada og Færeyjum.
Breiðablik að fá danskan miðvörð
TENGT EFNI

Breiðablik að fá danskan miðvörð

Obbekjær æfði með Breiðabliki í síðasta mánuði eins og kom fram hér á Fótbolta.net.

Hann er 21 árs gamall, réttfættur og 1.94 á hæð. Hann hefur verið síðustu tvö ár hjá 07 Vestur í færeysku deildinni en á að baki 2 leiki í dönsku úrvalsdeildinni með OB árið 2019.

Breiðablik fékk á dögunum til liðs við sig framherjann Benjamin Stokke en hefur auk þess frá því síðasta tímabili lauk fengið til liðs við sig Arnór Gauta Jónsson frá Fylki, Aron Bjarnason frá Sirius og Kristinn Jónsson frá KR auk manna sem voru lánaðir frá félaginu og snúa til baka.

Sjö leikmenn eru farnir, Anton Logi Lúðvíksson til Haugesund, Ágúst Eðvald Hlynsson til Danmerkur, Ágúst Orri Þorsteinsson til Genoa, Davíð Ingvarsson til Danmerkur, Gísli Eyjólfsson til Svíþjóðar, Klæmint Olsen til NSÍ (var á láni) og Oliver Stefánsson til ÍA.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.