Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mið 06. mars 2024 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alexander Veigar og aðrir reynslumiklir leikmenn í ÍH (Staðfest)
Alexander Veigar Þórarinsson.
Alexander Veigar Þórarinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍH hefur verið að gera áhugaverð félagaskipti að undanförnu en margir reynslumiklir leikmenn hafa samið við félagið.

Má þar nefna Alexander Veigar Þórarinsson sem er með mikla reynslu úr efstu og næst efstu deild. Hann spilaði fjóra leiki með Grindavík í Lengjudeildinni á síðasta tímabili.

Tvíburarnir Andri og Brynjar Jónassynir koma úr KFK en þeir hafa gert það mjög gott í neðri deildunum síðustu ár. Svo kom varnarmaðurinn Andy Pew einnig úr KFK.

Markvörðurinn Atli Gunnar Guðmundsson fékk einnig félagaskipti í ÍH en það er ekki langt síðan hann spilaði með FH og Fjölni í Bestu deildinni.

Þá krækti ÍH í Kristófer Dan Þórðarson sem hefur gert það gott með Haukum undanfarin ár.

ÍH hafnaði í tíunda sæti 3. deildar á síðasta tímabili og verður fróðlegt að fylgjast með liðinu í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner