Stefan Dabetic framlengir við Ægi (Staðfest)
Ægir í Þorlákhsöfn er búið að staðfesta nýjan samning við lykilmann sinn og fyrirliða Stefan Dabetic, sem gildir næstu tvö keppnistímabilin.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24439 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Ægir í Þorlákhsöfn er búið að staðfesta nýjan samning við lykilmann sinn og fyrirliða Stefan Dabetic, sem gildir næstu tvö keppnistímabilin.
Andri Rúnar Bjarnason er genginn til liðs við Vestra, sem er nýliði í Bestu deildinni. Þetta staðfestu Ísfirðingar með færslu á samfélagsmiðlum fyrir skömmu.
Hans Viktor Guðmundsson skrifaði í dag undir samning við KA út keppnistímabilið 2025. Hans Viktor er 27 ára miðvörður sem gengur til liðs við Akureyrarliðið frá Fjölni þar sem hann hefur leikið allan sinn feril. Hann rifti samningi sínum við Fjölni nýlega og hefur verið í viðræðum við einhver lið.
KFG hefur samið við Veigar Pál um að taka við þjálfun liðsins til tveggja ára. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins. Veigar lætur af störfum sem þjálfari 2. flokks Stjörnunnar en hann gerði liðið að Íslandsmeisturum í ár.

Hólmar Örn Rúnarsson, Bói, hefur skrifað undir samning við Keflavík og verður aðstoðarþjálfari liðsins. Hann mun því aðstoða Harald Frey Guðmundsson.

Skoski sóknarmaðurinn Harley Willard hefur framlengt samning sinn við KA til næstu tveggja ára. Knattspyrnudeild KA greinir frá þessum fregnum í dag.
Enski þjálfarinn Gary Rowett er hættur með Millwall eftir fjögur ár í starfi, en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í dag.
FH hefur tilkynnt um framlengingu á samningum við tvo leikmenn félagsins. Þeir Vuk Oskar Dimitrijevic og Ólafur Guðmundsson eru búnir að framlengja samninga sína. Vuk var keyptur frá uppeldisfélaginu Leikni árið 2020 en kláraði það tímabil í Breiðholti og var að ljúka sínu þriðja tímabili hjá FH. Óli kom til FH sumarið 2021 frá Breiðabliki eftir að hafa spilað fyrri hluta þess tímabils hjá Grindavík.
Ísak Máni Guðjónsson er genginn í raðir ÍA og hefur skrifað undir samning við félagið sem gildir út leiktíðina 2025. Ísak er fæddur 2005 og er lýst á samfélagsmiðlum ÍA sem gríðarlega efnilegum miðjumanni sem er sterkur varnar- og sóknarlega, kröftugur og með mikla boltatækni. Ísak er þrátt fyrir ungan aldur kominn með 43 meistaraflokksleiki með Víkingi Ólafsvík og hefur skorað í þeim fimm mörk. Á liðnu tímabili lék hann tólf leiki í 2. deildinni og þrjá bikarleiki. ÍA vann Lengjudeildina á liðnu tímabili og leikur í Bestu deildinni á næsta tímabili.
Breiðablik hefur staðfest að Nik Chamberlain sé tekinn við sem þjálfari hjá meistaraflokki kvenna, samningurinn gildir út árið 2026. Breiðablik hafnaði í öðru sæti Bestu deildar kvenna í sumar og tapaði gegn Víkingi í bikarúrslitaleiknum. Ásmundur Arnarsson var látinn fara á liðnu tímabili og bráðabirgðaþjálfarar stýrðu liðinu út tímabilið.

16.10.2023 20:43
Nik búinn að láta vita að hann taki við Breiðabliki

Fram hefur tilkynnt að varnarmaðurinn Delphin Tshiembe sé farinn frá félaginu eftir að samningurinn hans rann út.

Lengjudeildarlið Þórs tilkynnti nú í kvöld ráðningu Sigurði Heiðari Höskuldssyni sem nýs þjálfari liðisins. Samningur Sigurðar sem var aðstoðarþjálfari Vals á nýliðnu tímabili er til þriggja ára en Sigurður hafði áður en hann fór til Vals meðal annars þjálfað lið Leiknis í efstu deild. Í tilkynningu á vef Þórs segir meðal annars.

Steinar Þorsteinsson hefur skrifað undir nýjan samning við ÍA sem gildir út árið 2026.

Keflavík tilkynnti rétt í þessu að þeir Gunnlaugur Fannar Guðmundsson, Viktor Andri Hafþórsson og Mathias Rosenörn væru búnir að kveðja félagið. Keflavík féll úr Bestu deildinni í sumar og verður í Lengjudeildinni á næsta tímabili.
ÍA hefur tilkynnt um komu Hinriks Harðarsonar til félagsins. Hann átti frábært tímabil með Þrótti og kaupir ÍA hann af Lengjudeildarliðinu. Hinrik var orðaður við fleiri félög í haust en ÍA náði að krækja í sóknarmanninn sem skrifar undir samning út 2026. Hann er nítján ára og skoraði ellefu mörk í sumar.
Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur verið tilkynntur sem nýr þjálfari norska félagsins Haugasunds. Frá þessu er greint á heimasíðu norska félagsins. Samningur Óskars gildir til ársins 2026 og hefur störf hjá félaginu 1. nóvember. Hann mun þó ekki taka við sem þjálfari liðsins fyrr en á næsta tímabili.
Danski þjálfarinn Jess Thorup var í dag ráðinn til Augsburg til næstu tveggja ára.
Eyjólfur Héðinsson hefur verið ráðinn sem nýr aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Breiðabliki.
Franski bakvörðurinn Pascal Chimbonda gekk til liðs við Wigan Athletic í enska boltanum sumarið 2005 og vakti athygli á sér sem einn af bestu leikmönnum liðsins áður en hann skipti til Tottenham Hotspur og fór síðar til Sunderland, Blackburn Rovers og QPR meðal annars.
Rangers er búið að staðfesta ráðningu á Philippe Clement sem nýjum knattspyrnustjóra.