Fotbolti.net
20.10.23 - 22:11
Ívan Guðjón Baldursson

Stefan Dabetic framlengir við Ægi (Staðfest)

Stefan Dabetic framlengir við Ægi (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ægir í Þorlákhsöfn er búið að staðfesta nýjan samning við lykilmann sinn og fyrirliða Stefan Dabetic, sem gildir næstu tvö keppnistímabilin.
Stefan er 35 ára gamall varnarmaður með 128 leiki að baki á fimm árum hjá Ægi.

Stefan hefur verið einn af bestu leikmönnum Ægismanna frá komu sinni til Þorlákshafnar og var það forgangsmál hjá félaginu að semja við hann fyrir næstu leiktíð.

Stefan tókst ekki að bjarga Ægi frá falli úr Lengjudeildinni í ár, en liðið mun leika í 2. deild næsta sumar eftir að hafa aðeins tekist að næla sér í 9 stig úr 22 deildarleikjum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.