Fotbolti.net
17.10.23 - 12:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

ÍA kaupir Hinrik Harðarson (Staðfest)

ÍA kaupir Hinrik Harðarson (Staðfest)
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

ÍA hefur tilkynnt um komu Hinriks Harðarsonar til félagsins. Hann átti frábært tímabil með Þrótti og kaupir ÍA hann af Lengjudeildarliðinu.

Hinrik var orðaður við fleiri félög í haust en ÍA náði að krækja í sóknarmanninn sem skrifar undir samning út 2026. Hann er nítján ára og skoraði ellefu mörk í sumar.

Hinrik Harðar búinn að semja við ÍA
TENGT EFNI

Hinrik Harðar búinn að semja við ÍA

„Hinrik er öflugur ungur leikmaður sem hefur gert virkilega góða hluti í Lengjudeildinni. Ég tel hann tilbúinn til að stíga skrefið í efstu deild og hann hefur mikinn metnað til að bæta og þróa sinn leik. Ég er stoltur og ánægður með að hann hafi valið ÍA til þess. Ég hef fylgst lengi með Hinriki og er sannfærður um að eiginleikar hans falli vel að leik liðsins. Ég hlakka mikið til að vinna með honum," sagði Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, við undirskrift.

Hinrik er annar leikmaðurinn sem ÍA krækir í þennan veturinn. Marko Vardic gekk í raðir félagsins frá Grindavík fyrr í þessum mánuði.

ÍA vann Lengjudeildina í sumar og verður í Bestu deildinni að ári.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.