Fotbolti.net
17.10.23 - 18:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Steinar Þorsteins framlengir við ÍA (Staðfest)

Steinar Þorsteins framlengir við ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Steinar Þorsteinsson hefur skrifað undir nýjan samning við ÍA sem gildir út árið 2026.

Steinar er 25 ára gamall og er uppalinn í ÍA. Hann lék 21 leik þegar liðið tryggði sér sigur í Lengjudeildinni í sumar og spilar því í í Bestu deildinni á næsta ári. Hann var valinn í lið ársins í Lengjudeildinni.

Hann er reynslumesti Skagamaður liðsins í dag en hann hefur spilað 264 leiki og skorað 58 mörk.

ÍA hefur nælt í tvo leikmenn fyrir átökin í Bestu deildinni en Marko Vardic gekk til liðs við félagið frá Grindavík fyrr í þessum mánuði og í dag tilkynnti félagið komu Hinriks Harðarsonar frá Þrótti.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.