Delphin farinn frá Fram (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram hefur tilkynnt að varnarmaðurinn Delphin Tshiembe sé farinn frá félaginu eftir að samningurinn hans rann út.
Delphin gekk til liðs við Fram fyrir sumarið 2022 og lék 49 leiki og skoraði 9 mörk.
„Delph kveður okkur eftir tvö tímabil sem Framari. Það var sönn ánægja að fá að kynnast honum og þökkum við honum fyrir vel unnin störf í bláu treyjunni og óskum honum alls hins besta í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur. Takk Delph!" Segir í tilkynningu frá félaginu.
Fram var slapp við fall á síðustu leiktíð þar sem Delphin kom við sögu í 16 leikjum en liðið endaði í 10. sæti með 19 stig eins og ÍBV sem féll niður í Lengjudeildina.




