Andri Rúnar í Vestra (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Rúnar Bjarnason er genginn til liðs við Vestra, sem er nýliði í Bestu deildinni. Þetta staðfestu Ísfirðingar með færslu á samfélagsmiðlum fyrir skömmu.
Vestri kom sér upp í Bestu deildina með því að sigra úrslitakeppni Lengjudeildarinnar í haust og er Andri Rúnar gríðarlega mikilvægur liðsstyrkur.
Andri Rúnar er 32 ára gamall framherji sem gerði góða hluti hjá ÍBV í fyrra og var fenginn yfir til Vals í kjölfarið.
Hann er uppalinn hjá BÍ/Bolungarvík en lék fyrir Helsingborg, Kaiserslautern og Esbjerg í atvinnumennsku áður en hann hélt heim til Íslands í fyrra.
Það verður spennandi að fylgjast með liði Vestra á næsta ári eftir langþráða endurkomu í efstu deild.

Andri Rúnar Bjarnason er kominn heim???? pic.twitter.com/ANZsXfNThl
— Vestri - Fótbolti (@VestriF) October 20, 2023