Mathias Rosenörn og Viktor Andri yfirgefa Keflavík (Staðfest)

Mathias Rosenörn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Andri.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mathias Rosenörn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík tilkynnti rétt í þessu að þeir Gunnlaugur Fannar Guðmundsson, Viktor Andri Hafþórsson og Mathias Rosenörn væru búnir að kveðja félagið.
Keflavík féll úr Bestu deildinni í sumar og verður í Lengjudeildinni á næsta tímabili.

TENGT EFNI
Gunnlaugur Fannar riftir samningi við Keflavík
Danski markvörðurinn Rosenörn var kosinn besti leikmaður liðsins í sumar en hann kom frá Færeyjarmeisturunum í KÍ Klaksvík fyrir tímabilið. Hann samdi til eins árs og á samningurinn að renna út 16. nóvember.
Viktor Andri kom til Keflavíkur frá Fjölni í vetur. Hann kom við sögu í 20 leikjum og skoraði fjögur mörk í deild og Lengjubikar. Hann samdi til tveggja ára en er þrátt fyrir það á förum frá félaginu.
Gunnlaugur Fannar kom sömuleiðis til Keflavíkur síðasta vetur, kom frá Kórdrengjum og var í lykilhlutverki í vörn liðsins. Hann skoraði eitt mark í 28 leikjum.
„Við þökkum þessum eðaldrengjum fyrir þeirra framlag og góð kynni í Keflavík og óskum þeim alls hins besta," segir í tilkynningu félagsins.