Bói aðstoðar Harald hjá Keflavík (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hólmar Örn Rúnarsson, Bói, hefur skrifað undir samning við Keflavík og verður aðstoðarþjálfari liðsins. Hann mun því aðstoða Harald Frey Guðmundsson.
Bói er 41 árs gamall og er uppalinn Keflvíkingur en lék einnig með FH, Víði og Njarðvík á sínum leikmannaferli. Hann lék 467 leiki á sínum ferli og skoraði 67 mörk.
Hann hefur þjálfað hjá Víði og Njarðvík en hann hætti í þjálfarateymi KA eftir tímabilið í ár og er nú mættur aftur heim.
„Þetta leggst gríðarlega vel í mig. Ég er mjög spenntur að koma aftur til Keflavíkur og takast á við komandi tímabil," sagði Bói við undirskriftina.
Keflavík leikur í Lengjudeildinni næsta sumar eftir að hafa fallið úr Bestu deildinni í sumar.




