Fotbolti.net
17.10.23 - 20:13
Sverrir Örn Einarsson

Siggi Höskulds nýr þjálfari Þórs (Staðfest)

Siggi Höskulds er nýr þjálfari Þórs

Siggi Höskulds er nýr þjálfari Þórs

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Lengjudeildarlið Þórs tilkynnti nú í kvöld ráðningu Sigurði Heiðari Höskuldssyni sem nýs þjálfari liðisins. Samningur Sigurðar sem var aðstoðarþjálfari Vals á nýliðnu tímabili er til þriggja ára en Sigurður hafði áður en hann fór til Vals meðal annars þjálfað lið Leiknis í efstu deild. Í tilkynningu á vef Þórs segir meðal annars.
Sigurður Heiðar er 38 ára gamall og starfaði síðast hjá Val sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks en var þar áður aðalþjálfari Leiknis R. þar sem hann náði eftirtektarverðum árangri.

Siggi Höskulds er íþróttafræðingur að mennt auk þess að vera að ljúka við UEFA PRO sem er æðsta þjálfaragráða hér á landi.

„Siggi var efstur á lista stjórnar frá upphafi og sá eini sem við fórum í viðræður við. Erum við því virkilega ánægðir með ráðninguna, hlökkum til samstarfsins og bjóðum hann velkominn í Þorpið,“ segir Sveinn Elías, formaður knattspyrnudeildar Þórs.

„Sigurður gekk til liðs við Val frá Leikni Reykjavík fyrir s.l keppnistímabil og hefur sýnt og sannað að þar er á ferðinni frábær þjálfari, góður einstaklingur og félagi. Sigurður tekur við sem aðalþjálfari Þórs Akureyri og óskum við honum velfarnaðar í leik og starfi," segir í tilkynningu Vals þar sem sagt er að Siggi láti af störfum sem aðstoðarþjálfari Hlíðarendaliðsins.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.