Harley Willard framlengir við KA til 2025 (Staðfest)

Mynd: KA

Mynd: KA
Skoski sóknarmaðurinn Harley Willard hefur framlengt samning sinn við KA til næstu tveggja ára. Knattspyrnudeild KA greinir frá þessum fregnum í dag.

TENGT EFNI
Félög í efstu tveimur deildunum á eftir Harley Willard
Þessi 26 ára gamli leikmaður fór í gegnum akademíuna hjá Arsenal og spilaði þá einnig með yngri liðum Southampton, en hann kom hingað til lands árið 2019 og samdi við Víking Ólafsvík.
Willard lék þrjú tímabil með Víkingi áður en hann skipti yfir í Þór á síðasta ári. Þar gerði hann 15 mörk í 24 leikjum í deild- og bikar.
Willard kom til KA frá Þór fyrir nýafstaðið tímabil en hann gerði 5 mörk í 24 leikjum í Bestu deildinni. Þar að auki gerði hann eitt mark í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu.
Hann hefur nú framlengt samning sinn við KA til næstu tveggja ára eða út 2025.
KA hafnaði í efsta sæti neðri hluta Bestu deildarinnar með 41 stig og komst þá í úrslit Mjólkurbikarsins.