Fotbolti.net
15.10.23 - 14:04
Ívan Guðjón Baldursson

Philippe Clement tekinn við Rangers (Staðfest)

Philippe Clement tekinn við Rangers (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Rangers er búið að staðfesta ráðningu á Philippe Clement sem nýjum knattspyrnustjóra.
Clement tekur við af Michael Beale sem var rekinn fyrir tveimur vikum og er búinn að skrifa undir þriggja og hálfs árs samning við skoska stórveldið.

Rangers velur á milli Clement og Muscat í dag
TENGT EFNI

Rangers velur á milli Clement og Muscat í dag



Clement er 49 ára gamall og mætir á æfingasvæði Rangers strax á morgun fyrir fyrsta heimaleik sinn við stjórnvölinn, sem verður gegn Hibernian næsta laugardag.

Clement er ráðinn til Rangers eftir misheppnaða dvöl hjá AS Mónakó. Hann var látinn fara í sumar eftir að honum mistókst að koma Mónakó í Evrópusæti í frönsku deildinni, þrátt fyrir að vera með yfir 50% sigurhlutfall.

Áður en hann tók við Mónakó hafði Clement unnið efstu deild belgíska boltans þrjú ár í röð með Genk og Club Brugge.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.