Fotbolti.net
18.10.23 - 18:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Vuk og Óli Guðmunds framlengja við FH (Staðfest)

Vuk

Vuk

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

FH hefur tilkynnt um framlengingu á samningum við tvo leikmenn félagsins. Þeir Vuk Oskar Dimitrijevic og Ólafur Guðmundsson eru búnir að framlengja samninga sína.

Vuk var keyptur frá uppeldisfélaginu Leikni árið 2020 en kláraði það tímabil í Breiðholti og var að ljúka sínu þriðja tímabili hjá FH. Óli kom til FH sumarið 2021 frá Breiðabliki eftir að hafa spilað fyrri hluta þess tímabils hjá Grindavík.
Samningar beggja leikmanna voru að renna út núna að tímabilinu 2023 loknu en ljóst er að þeir verða áfram hjá félaginu.

Vuk er 22 ára og getur bæði spilað sem sóknarsinnaður miðjumaður og kantmaður. Óli er 21 árs varnarmaður sem getur bæði spilað sem miðvörður og vinstri bakvörður.

Vuk skoraði þrjú mörk í 25 leikjum í sumar. Hann lék á sínum tíma tíu leiki fyrir yngri landsliðin. Óli skoraði eitt mark í 26 leikjum í sumar. Hann á að baki 16 leiki fyrir yngri landsliðin og hefur hann byrjað fyrstu tvo leiki U21 landsliðsins í undankeppninni fyrir EM 2025.

Ólafur skrifar undir samning sem gildir út 2025 og Vuk semur út næsta tímabil.
Ólafur

Ólafur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.