Chimbonda byrjar þjálfaraferilinn hjá Skelmersdale (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Franski bakvörðurinn Pascal Chimbonda gekk til liðs við Wigan Athletic í enska boltanum sumarið 2005 og vakti athygli á sér sem einn af bestu leikmönnum liðsins áður en hann skipti til Tottenham Hotspur og fór síðar til Sunderland, Blackburn Rovers og QPR meðal annars.
Nú er Chimbonda kominn aftur til Englands þar sem hann tekur við utandeildarfélagi Skelmersdale United, sem var upprunalega stofnað árið 1882.
Chimbonda er 44 ára gamall og er að taka við sínu fyrsta starfi sem aðalþjálfari fótboltafélags.
Fyrsti leikur Chimbonda við stjórnvölinn verður gegn Kendal Town næsta miðvikudagskvöld.
Chimbonda lék einn A-landsleik fyrir franska landsliðið á ferli sínum sem leikmaður, auk þess að spila sex landsleiki fyrir Gvadelúpeyjar.

I’m so happy to be introduced as @Skemutdofficial new manager! Hopefully we can turn things around and enjoy the rest of the season with more success and continued support from all of our fans #TrustTheProcess #LetsGo #stepbystep #football pic.twitter.com/laeUXx1CKT
— chimbonda pascal (@pascalchimbond1) October 15, 2023