Fyrrum þjálfari Hákonar, Ísaks og Orra tekur við Augsburg (Staðfest)

Mynd: Augsburg

Mynd: Augsburg
Danski þjálfarinn Jess Thorup var í dag ráðinn til Augsburg til næstu tveggja ára.
Thorup þjálfaði síðast danska meistaraliðið FCK, en hann var látinn fara á síðasta ári.
Íslensku landsliðsmennirnir Hákon Arnar Haraldsson, Ísak Bergmann Jóhannesson og Orri Steinn Óskarsson spiluðu allir undir hans stjórn hjá FCK.
Hann er nú kominn með nýtt og stærra starf en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við þýska úrvalsdeildarliðið Augsburg.
Augsburg er í 15. sæti deildarinnar með 5 stig, en liðið hefur aðeins unnið einn af fyrstu sjö leikjum tímabilsins.