ÍA fær Ísak Mána frá Ólafsvík (Staðfest)

Ísak Máni (til vinstri).

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísak Máni (til vinstri).

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísak Máni Guðjónsson er genginn í raðir ÍA og hefur skrifað undir samning við félagið sem gildir út leiktíðina 2025.
Ísak er fæddur 2005 og er lýst á samfélagsmiðlum ÍA sem gríðarlega efnilegum miðjumanni sem er sterkur varnar- og sóknarlega, kröftugur og með mikla boltatækni.
Ísak er þrátt fyrir ungan aldur kominn með 43 meistaraflokksleiki með Víkingi Ólafsvík og hefur skorað í þeim fimm mörk. Á liðnu tímabili lék hann tólf leiki í 2. deildinni og þrjá bikarleiki.
ÍA vann Lengjudeildina á liðnu tímabili og leikur í Bestu deildinni á næsta tímabili.

Ísak Máni Guðjónsson hefur skrifað undir samning við ÍA út leiktíðina 2025 ????
— ÍA Akranes FC (@Skagamenn) October 18, 2023
Ísak (2005) er gríðarlega efnilegur miðjumaður. Hann er sterkur varnar- og sóknarlega, kröftugur og með mikla boltatækni ????
Ísak er þrátt fyrir ungan aldur kominn með 43 meistaraflokks leiki með… pic.twitter.com/Tsc2uq6s2q