FRÉTTIR18.08.2023, 10:36
Danska úrvalsdeildarfélagið Lyngby hefur staðfest að félagið sé búið að selja íslenska sóknarmanninn Alfreð Finnbogason til Eupen í Belgíu.
Alfreð skrifar undir tveggja ára samning í Belgíu en sagt er að kaupverðið sé um 38,6 milljónir íslenskra króna.
FRÉTTIR18.08.2023, 09:14
Miðjumaðurinn efnilegi Romeo Lavia er búinn að skrifa undir samning við Chelsea og hefur formlega verið kynntur sem leikmaður félagsins.
FRÉTTIR18.08.2023, 08:45
Sóknarmaðurinn Andri Lucas Guðjohnsen hefur fært sig um set til Danmerkur þar sem hann er genginn í raðir Íslendingafélagsins Lyngby.
FRÉTTIR17.08.2023, 22:30
Al-Hilal tilkynnti í kvöld kaupin á Marokkómanninum Yassine Bounou en hann kemur frá Sevilla á Spáni.
FRÉTTIR17.08.2023, 20:04
Framarar lönduðu einum leikmanni undir lok gluggans en Íslendingurinn Albert Vésteinsson Östenberg kom til félagsins frá Öster í Svíþjóð.
FRÉTTIR17.08.2023, 17:45
Ítalska félagið Lazio hefur gengið frá samningum við Juventus um hinn 24 ára gamla Luca Pellegrini.
FRÉTTIR17.08.2023, 14:08
Gautaborg greindi frá því í dag að Kolbeinn Þórðarson væri genginn í raðir félagsins. Samningurinn gildir út tímabilið.
FRÉTTIR17.08.2023, 12:29
Michael Olise vængmaður Crystal Palace hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Steve Parish stjórnarformaður félagsins greindi frá þessu á Instagram.
Búist var við því að Olise myndi fara til Chelsea sem hafði virkjað riftunarákvæði upp á 35 milljónir punda. Olise hafnaði hinsvegar Chelsea og heldur tryggð við Palace.
FRÉTTIR17.08.2023, 11:10
ÍBV hefur fengið til sín miðjumanninn Kevin Bru en hann er 34 ára, fæddur og uppalinn í Frakklandi en á 21 landsleik fyrir eyríkið Máritíus á Indlandshafi. Foreldrar hans eru þaðan.
Hann kom upp úr unglingastarfi Rennes en hefur víða komið við í franska boltanum, meðal annars hjá Dijon. Á árunum 2014-2018 lék hann fyrir Ipswich Town á Englandi og spilaði í Championship-deildinni. Auk þess hefur hann spilað á Kýpur og í Rúmeníu.
Síðustu ár hefur hann leikið í frönsku neðri deildunum, síðast fyrir C'Chartres sem er í sjöttu efstu deild.
FRÉTTIR17.08.2023, 09:54
Nýliðar Luton í ensku úrvalsdeildinni hafa samið við markvörðinn reynslumikla Tim Krul. Þessi 35 ára Hollendingur yfirgefur Norwich eftir fimm ára veru hjá félaginu.
Krul hefur leikið fimmtán landsleiki fyrir Holland og segist spenntur fyrir því að taka þátt í því ævintýri sem sé í gangi hjá Luton.
FRÉTTIR17.08.2023, 09:30
Atalanta hefur fengið Charles De Ketelaere frá AC Milan. Hann kemur á lánssamningi með möguleika á kaupum síðar.
Talið er að Atalanta borgi Milan 3 milljónir evra í lánskostnað og geti svo keypt hann fyrir 22 milljónir til viðbótar auk 4 milljóna í árangurstengdar greiðslur. Þá mun Milan fá 10% af næstu sölu leikmannsins.
De Ketelaere er 22 ára sóknarmiðjumaður og mun væntanlega leika sinn fyrsta leik fyrir Atalanta á sunnudag, gegn Sassuolo í fyrstu umferð ítölsku A-deildarinnar.
Hann kom til AC Milan frá Club Brugge fyrir 35 milljónir punda fyrir ári síðan en stóð alls ekki undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar.
FRÉTTIR17.08.2023, 06:00
Helena Hekla Hlynsdóttir mun klára tímabilið með ÍBV en hún kemur frá Selfossi.
FRÉTTIR16.08.2023, 20:48
Inter á Ítalíu hefur gengið frá kaupum á austurríska framherjanum Marko Arnautovic frá Bologna.
FRÉTTIR16.08.2023, 18:41
Spænski leikmaðurinn Santi Cazorla skrifaði í dag undir eins árs samning við spænska B-deildarfélagið Real Oviedo.
FRÉTTIR16.08.2023, 17:00
Hollenska stórliðið Ajax hefur fengið til sín sóknarmanninn Chuba Akpom frá Middlesbrough í Championship-deildinni.
Þessi 27 ára leikmaður skoraði 29 mörk fyrir Boro í öllum keppnum og var markahæsti leikmaður ensku B-deildarinnar.
FRÉTTIR16.08.2023, 13:30
Miðjumaðurinn Tom Davies er búinn að skrifa undir samning við Sheffield United og mun leika fyrir félagið í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.
Davies gerir samning við Sheffield United sem gildir næstu þrjú árin.
FRÉTTIR16.08.2023, 11:30
Roma hefur staðfest kaup á Renato Sanches, portúgalski miðjumaðurinn kemur á lánssamningi með ákvæði sem skyldar Roma svo til að kaupa hann að uppfylltum vissum ákvæðum.
Sanches <a href="https://fotbolti.net/news/16-08-2023/paredes-aftur-til-roma-stadfest" target="_blank">fylgir Leandro Paredes</a> frá PSG til ítölsku höfuðborgarinnar.
Ítalskir fjölmiðlar segja að Roma geti keypt Sanches fyrir 15 milljónir evra eftir tímabilið.
<i>„Ég er svo ánægður með að vera kominn í þetta stóra félag. Ég er hrifinn af hugmyndum Roma og tel þetta vera rétt skref,"</i> segir hinn 25 ára Sanches sem verður í treyju númer 20.
FRÉTTIR16.08.2023, 11:18
ÍBV hefur fengið liðsstyrk fyrir endasprettinn í Bestu deildinni. Sá heitir Michael Jordan Nkololo og getur hann bæði spilað sem sóknarsinnaður miðjumaður og framherji.
Sögur höfðu heryst af því að ÍBV ætlaði að styrkja sig í framherjastöðunni fyrir endasprettinn og er hann nú kominn.
FRÉTTIR16.08.2023, 10:57
Birgir Steinn Styrmisson er genginn í raðir KR á nýjan leik eftir tvö ár hjá ítalska félaginu Spezia. Hann fékk leikheimild á Ítalíu eftir skipti frá KR fyrir tveimur árum. <a href="https://www.fotbolti.net/news/14-08-2023/birgir-steinn-a-leid-heim-i-kr" target="_blank">Fótbolti.net fjallaði um mögulega heimkomu Birgis á mánudag.</a>
Birgir er varnarmaður sem byrjaði tvo af þremur leikjum U19 landsliðsins í forkeppni fyrir EM síðasta vetur. Hann missti af milliriðlunum í mars vegna meiðsla og var ekki með í sumar þegar liðið fór á lokamót EM.
FRÉTTIR16.08.2023, 10:47
LA Galaxy hefur fengið framherjann Billy Sharp í sínar raðir á frjálsri sölu frá Sheffield United. Sharp er 37 ára og rann út á samningi hjá Sheffield í sumar.
Hann skrifar undir samning út tímabilið 2023 og hefur félagið möguleika á því að framlengja út næsta tímabil.