Fotbolti.net
16.08.23 - 17:00
Elvar Geir Magnússon

Markakóngur Championship til Ajax (Staðfest)

Chuba Akpom með treyjuna.

Chuba Akpom með treyjuna.

Canon

Mynd: Ajax

Hollenska stórliðið Ajax hefur fengið til sín sóknarmanninn Chuba Akpom frá Middlesbrough í Championship-deildinni.

Þessi 27 ára leikmaður skoraði 29 mörk fyrir Boro í öllum keppnum og var markahæsti leikmaður ensku B-deildarinnar.
„Ég vil þakka öllum sem tengjast Boro," segir Akpom. „Síðasta tímabil var fullt af minningum sem ég mun aldrei gleyma. Allir vita hvað mér finnst um Michael Carrick, stjóra Middlesbrough, og ég er viss um að velgengni sé handan við hornið."

Ajax hafnaði í þriðja sæti hollensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili, þrettán stigum á eftir meisturunum og erkifjendunum í Feyenoord.

Akpom hóf feril sinn hjá Arsenal og lék alls tólf leiki með aðalliði Arsenal.



Mynd: Getty Images
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.