Fotbolti.net
17.08.23 - 14:08
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kolbeinn Þórðar hjá Gautaborg út árið (Staðfest)

Kolbeinn Þórðar hjá Gautaborg út árið (Staðfest)
Canon

Mynd: Gautaborg

Gautaborg greindi frá því í dag að Kolbeinn Þórðarson væri genginn í raðir félagsins. Samningurinn gildir út tímabilið.
Kolbeinn er 23 ára miðjumaður sem var í fjögur ár hjá Lommel í Belgíu. Hann á að baki einn A-landsleik og var fyrirliði U21 landsliðsins í síðustu undankeppni.

„Ég er spenntur fyrir haustinu með þeim Bláhvítu og vil taka þátt og leggja mitt af mörkum á allan hátt sem ég get," sagði Kolbeinn við undirskrift.

Hann var á reynslu hjá félaginu síðustu daga og fékk í kjölfarið samning. „Á meðan reynslunni stóð sáum við metnaðarfullan og vel skólaðan leikmann sem við teljum að hafi styrkleika sem geti nýst okkar liði. Kolbeinn er fjölhæfur og getur spilað nokkrar stöður á miðsvæðinu. Hann býr yfir fínni grunntækni og er klókur sendingamaður," sagði Ola Larsson hjá Gautaborg.

„Ef allt gengur vel í haust þá breytist þessi skammtímasamningur í langtímasamning áður en næsta tímabil hefst." Kolbeinn bætti einnig við: „Það er mjög góð tilfinning að þetta sé frágengið. Upplifun mín af félaginu er mjög jákvæð."

Gautaborg er í næstneðsta sæti sænsku Allsvenskan, fjórum stigumf rá öruggu sæti þegar ellefu umferðir eru eftir.

Menn hjá Lommel eru ánægðir með Kolla eins og hann er kallaður. „Kolli hefur verið frábær fyrir félagið. Hans vilji til að bæta sig og gefa sig allan í æfingar og keppni var til fyrirmyndar. Við óskum honum alls hins besta og við erum vissir um að hann mun ná því besta út úr sínum hæfileikum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.