Fotbolti.net
17.08.23 - 20:04
Brynjar Ingi Erluson

Fram fær Íslending frá Öster (Staðfest)

Fram fær Íslending frá Öster (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framarar lönduðu einum leikmanni undir lok gluggans en Íslendingurinn Albert Vésteinsson Östenberg kom til félagsins frá Öster í Svíþjóð.
Albert er 19 ára gamall miðvörður og er fæddur og uppalinn í Svíþjóð en hann er sonur Vésteins Hafsteinssonar, afreksstjóra Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.

Undanfarin ár hefur hann æft og spilað með unglingaliðum Öster í Svíþjóð, en mætti til æfinga hjá Fram í sumar og fékk síðan félagaskipti sín í gegn undir lok gluggans.

Til að byrja með mun hann spila með 2. flokki Fram en mun þó áfram æfa með meistaraflokki félagsins.

Framarar eru í næst neðsta sæti Bestu deildarinnar með 15 stig en aðeins þrír leikir eru eftir af venjulegum hluta deildarinnar áður en henni verður skipt í tvo hluta.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.