Fotbolti.net
16.08.23 - 10:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Birgir Steinn heim í KR (Staðfest) - Tveir aðrir tilkynntir á gluggadegi

Birgir Steinn heim í KR (Staðfest) - Tveir aðrir tilkynntir á gluggadegi
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Birgir Steinn Styrmisson er genginn í raðir KR á nýjan leik eftir tvö ár hjá ítalska félaginu Spezia. Hann fékk leikheimild á Ítalíu eftir skipti frá KR fyrir tveimur árum. Fótbolti.net fjallaði um mögulega heimkomu Birgis á mánudag.

Birgir er varnarmaður sem byrjaði tvo af þremur leikjum U19 landsliðsins í forkeppni fyrir EM síðasta vetur. Hann missti af milliriðlunum í mars vegna meiðsla og var ekki með í sumar þegar liðið fór á lokamót EM.
Hann er 19 ára og á að baki 18 leiki fyrir yngri landsliðin. Hann er miðvörður sem samkvæmt Transfermarkt getur einnig spilað sem vinstri bakvörður og djúpur miðjumaður.

Hann fór á reynslu hjá Öster í sumar en er kominn aftur heim í KR. Hann fær leikheimild á morgun og verður því ekki með KR þegar liðið mætir Víkingi í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld.

Í gær greindi KR frá því að þeir Einar Baldvin Baldvinsson og Benedikt Þórir Jóhannsson væru gengnir í raðir félagsins. Einar er fæddur árið 2004 og kemur frá Þrótti og skrifar undir samning til 2026. „Eiður, sem er sóknarmaður að upplagi, kemur til okkar frá Þrótti en Eiður er uppalinn í Stjörnunni," segir í tilkynningu KR.

Benedikt er fæddur árið 2007 og kemur frá ÍR, hann á að baki tvo leiki með U15 landsliðinu. Varnarmaðurinn skrifar undir samning sem gildir til 2025.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.