Fotbolti.net
16.08.23 - 11:30
Elvar Geir Magnússon

Renato Sanches til Roma (Staðfest)

Renato Sanches og Leandro Paredes lentir í Róm.

Renato Sanches og Leandro Paredes lentir í Róm.

Canon

Mynd: Getty Images

Roma hefur staðfest kaup á Renato Sanches, portúgalski miðjumaðurinn kemur á lánssamningi með ákvæði sem skyldar Roma svo til að kaupa hann að uppfylltum vissum ákvæðum.

Sanches fylgir Leandro Paredes frá PSG til ítölsku höfuðborgarinnar.

Ítalskir fjölmiðlar segja að Roma geti keypt Sanches fyrir 15 milljónir evra eftir tímabilið.

„Ég er svo ánægður með að vera kominn í þetta stóra félag. Ég er hrifinn af hugmyndum Roma og tel þetta vera rétt skref," segir hinn 25 ára Sanches sem verður í treyju númer 20.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.