Alfreð Finnboga til Eupen (Staðfest)

Alfreð Finnbogason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alfreð Finnbogason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danska úrvalsdeildarfélagið Lyngby hefur staðfest að félagið sé búið að selja íslenska sóknarmanninn Alfreð Finnbogason til Eupen í Belgíu.
Alfreð skrifar undir tveggja ára samning í Belgíu en sagt er að kaupverðið sé um 38,6 milljónir íslenskra króna.

Nicas Kjeldsen, yfirmaður fótboltamála hjá Lyngby, segist svekktur að missa Alfreð á þessum tímapunkti og það hafi ekki verið planið.
„Alfreð er með mikla þrá að skipta til Eupen og við ákváðum að samþykkja tilboðið þar sem það var nægilega gott að okkar mati," sagði Kjeldsen.
Alfreð, sem er 34 ára gamall, gekk í raðir Íslendingaliðsins Lyngby á síðasta ári eftir að hafa spilað með þýska úrvalsdeildarfélaginu Augsburg um langt skeið.
Hann hjálpaði Lyngby að halda sæti sínu í dönsku úrvalsdeildinni. Alfreð skrifaði undir nýjan samning í sumar en er núna á förum.
Eupen hafnaði í 15. sæti belgísku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. Þetta er í annað sinn sem Alfreð spilar í Belgíu en hann lék með Lokeren frá 2011 til 2012.
Lyngby er nú þegar búið að finna arftaka Alfreðs því Andri Lucas Guðjohnsen er kominn til félagsins á láni út tímabilið.