Fotbolti.net
18.08.23 - 09:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Romeo Lavia í Chelsea (Staðfest)

Romeo Lavia.

Romeo Lavia.

Canon

Mynd: Chelsea

Miðjumaðurinn efnilegi Romeo Lavia er búinn að skrifa undir samning við Chelsea og hefur formlega verið kynntur sem leikmaður félagsins.
Lavia, sem er 19 ára gamall, er keyptur til Chelsea frá Southampton fyrir 53 milljónir punda. Kaupverðið gæti svo hækkað upp í 58 milljónir punda síðar meir.

Chelsea hafði betur í baráttunni við Liverpool um Lavia en hann er áttundi leikmaður sem Lundúnafélagið sækir í þessum glugga.

Lavia skrifar undir sjö ára samning við Chelsea.

„Ég er mjög ánægður að ganga í raðir Chelsea og að vera hluti af þessu spennandi verkefni sem hér er í gangi. Þetta er stórkostlegt fótboltafélag með mikla sögu og ég er gríðarlega spenntur að mæta til starfa," sagði Lavia.

Lavia gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Chelsea á sunnudaginn þegar liðið mætir West Ham í annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.