Fotbolti.net
18.08.23 - 08:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Andri Lucas í Lyngby (Staðfest) - Á að fylla skarð Alfreðs

Andri Lucas Guðjohnsen.

Andri Lucas Guðjohnsen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sóknarmaðurinn Andri Lucas Guðjohnsen hefur fært sig um set til Danmerkur þar sem hann er genginn í raðir Íslendingafélagsins Lyngby.
Andri kemur til Lyngby á láni frá sænska félaginu Norrköping þar sem hann hefur lítið fengið að spila. Ákvæði er í lánssamningnum að Lyngby getur keypt Andra fyrir ákveðna upphæð.

Andri Lucas er 21 árs gamall sóknarmaður sem kemur úr mikilli fótboltafjölskyldu. Faðir hans er einn af bestu fótboltamönnum í sögu Íslands, Eiður Smári Guðjohnsen.

Andri hóf feril sinn í akademíum Barcelona og Real Madrid á Spáni en hann fór til Svíþjóðar á síðasta ári. Þar fékk hann fá tækifæri og fagnar hann skiptum sínum til Lyngby.

„Ég held að það séu spennandi tímar framundan hjá félaginu. Ég tel að ég geti þróað minn leik en ég vonast til að borga til baka fyrir traustið sem félagið hefur sýnt mér," segir Andri Lucas.

Þjálfari Lyngby er Freyr Alexandersson og hjá félaginu eru fyrir þrír íslenskir leikmenn: Alfreð Finnbogason, Kolbeinn Finnsson og Sævar Atli Magnússon.

Alfreð á förum
Vefmiðillinn 433.is greinir frá því í morgunsárið að Alfreð sé á förum frá Lyngby og að Andra sé ætlað að fylla hans skarð.

Alfreð er sagður á leið til Eupen í belgísku úrvalsdeildinni. Guðlaugur Victor Pálsson, sem er einnig í íslenska landsliðinu, gekk í raðir Eupen á dögunum.

Alfreð, sem er 34 ára gamall, gekk í raðir Lyngby á síðasta ári eftir að hafa spilað með þýska úrvalsdeildarfélaginu Augsburg um langt skeið. Hann hjálpaði Lyngby að halda sæti sínu í dönsku úrvalsdeildinni. Alfreð skrifaði undir nýjan samning í sumar en er núna á förum og mun skrifa undir tveggja ára samning í Belgíu.
Alfreð og Guðlaugur Victor verða liðsfélagar.

Alfreð og Guðlaugur Victor verða liðsfélagar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.