De Ketelaere til Atalanta og Rovella til Lazio (Staðfest)

De Ketelaere í leik með belgíska landsliðinu.

Mynd: EPA

Nicolo Rovella.

Mynd: Getty Images

Atalanta hefur fengið Charles De Ketelaere frá AC Milan. Hann kemur á lánssamningi með möguleika á kaupum síðar.
Talið er að Atalanta borgi Milan 3 milljónir evra í lánskostnað og geti svo keypt hann fyrir 22 milljónir til viðbótar auk 4 milljóna í árangurstengdar greiðslur. Þá mun Milan fá 10% af næstu sölu leikmannsins.
De Ketelaere er 22 ára sóknarmiðjumaður og mun væntanlega leika sinn fyrsta leik fyrir Atalanta á sunnudag, gegn Sassuolo í fyrstu umferð ítölsku A-deildarinnar.
Hann kom til AC Milan frá Club Brugge fyrir 35 milljónir punda fyrir ári síðan en stóð alls ekki undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar.

Lazio að fá menn frá Juve
Fleiri félagaskiptafréttir frá Ítalíu. Miðjumaðurinn Nicolo Rovella er kominn til Lazio á tveggja ára lánssamningi frá Juventus. Lazio er skyldugt til að kaupa hann að uppfylltum ákvæðum.
Þessi 21 árs leikmaður kom til Juventus frá Genoa 2021 en var strax sendur í lán aftur til Genoa í eitt tímabil. Á síðasta tímabili var hann á láni hjá Monza þar sem hann spilaði 27 leiki í öllum keppnum.
Þá er Lazio að tryggja sér Luca Pellegrini vinstri bakvörð Juventus en hann lék á láni hjá Lazio seinni hluta síðasta tímabils.