Tim Krul til Luton (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Nýliðar Luton í ensku úrvalsdeildinni hafa samið við markvörðinn reynslumikla Tim Krul. Þessi 35 ára Hollendingur yfirgefur Norwich eftir fimm ára veru hjá félaginu.
Krul hefur leikið fimmtán landsleiki fyrir Holland og segist spenntur fyrir því að taka þátt í því ævintýri sem sé í gangi hjá Luton.

Hann á 222 leiki í ensku úrvalsdeildinni að baki, með Newcastle og Norwich.
„Tim er leiðtogi og toppmarkvörður sem er enn mjög metnaðarfullur og hungraður. Hann vill spila. Það er gott að hafa svona mann í hópnum sem mun veita öðrum markvörðum samkeppni," segir Rob Edwards, stjóri Luton.
Belginn Thomas Kaminski, sem kom til Luton frá Blackburn í sumar, varði mark Luton í fyrstu umferð en þá tapaði liðið 4-1 fyrir Brighton.

Welcome, @TimKrul! ??#COYH pic.twitter.com/Zu2vWRZNbb
— Luton Town FC (@LutonTown) August 17, 2023