Fotbolti.net
17.08.23 - 12:29
Elvar Geir Magnússon

Olise hafnaði Chelsea og gerði nýjan samning við Palace (Staðfest)

Michael Olise og Steve Parish.

Michael Olise og Steve Parish.

Canon

Mynd: Instagram

Michael Olise vængmaður Crystal Palace hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Steve Parish stjórnarformaður félagsins greindi frá þessu á Instagram.

Búist var við því að Olise myndi fara til Chelsea sem hafði virkjað riftunarákvæði upp á 35 milljónir punda. Olise hafnaði hinsvegar Chelsea og heldur tryggð við Palace.
„Ég er algjörlega í skýjunum með það að Olise hafi gert nýjan samning við Crystal Palace og skrifað undir til fjögurra ára," skrifaði Parish.

Roy Hodgson stjóri Palace mun sitja fyrir svörum á fréttamannafundi rétt á eftir og verður spennandi að sjá hvað hann segir um þessar óvæntu en gleðilegu fréttir fyrir félagið.

Olise gekk í raðir Palace frá Reading 2021 en hann var í yngri flokka starfi Chelsea áður en hann yfirgaf félagið fjórtán ára gamall.
Olise hafnaði Chelsea og gerði nýjan samning við Palace (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.