Fotbolti.net
16.08.23 - 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Tom Davies í Sheffield United (Staðfest)

Tom Davies.

Tom Davies.

Canon

Mynd: Sheffield United

Miðjumaðurinn Tom Davies er búinn að skrifa undir samning við Sheffield United og mun leika fyrir félagið í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Davies gerir samning við Sheffield United sem gildir næstu þrjú árin.
Davies hefur verið án félags eftir að samningur hans við Everton rann út. Miðjumaðurinn er 25 ára Englendingur sem hefur til þessa leikið með Everton allan sinn feril.

„Ég er mjög spenntur, mér finnst þetta frábært verkefni," segir Davies.

Sheffield United byrjaði tímabilið á því að tapa 0-1 gegn Crystal Palace á heimavelli.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.