Billy Sharp til LA Galaxy (Staðfest) - Sheffield Utd ræðir við Tom Davies

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
LA Galaxy hefur fengið framherjann Billy Sharp í sínar raðir á frjálsri sölu frá Sheffield United. Sharp er 37 ára og rann út á samningi hjá Sheffield í sumar.
Hann skrifar undir samning út tímabilið 2023 og hefur félagið möguleika á því að framlengja út næsta tímabil.

Sharp er goðsögn hjá Sheffield United, er uppalinn hjá félaginu og á tæplega 380 keppnisleiki fyrir félagið. Á ferlinum hefur hann spilað 693 leiki fyrir félagslið og skorað 267 mörk. Hann er markahæsti leikmaður í sögu Championship-deildarinnar með 130 mörk skoruð í 399 leikjum.
Á síðasta tímabili skoraði Englendingurinn þrjú mörk í 45 leikjum með Sheffield United sem vann sér sæti í úrvalsdeildinni með því að enda í 2. sæti Championship-deildarinnar.
Galaxy er ekki í góðri stöðu í MLS deildinni og þarf að hala inn stigum á lokasprettinum til að ná sæti í úrslitakeppninni.
Önnur tíðindi af Sheffield United eru þau að félagið er að ræða við Tom Davies sem er án félags eftir að samningur hans við Everton rann út. Miðjumaðurinn er 25 ára Englendingur sem hefur til þessa leikið með Everton allan sinn feril.