Fotbolti.net
17.08.23 - 22:30
Brynjar Ingi Erluson
Jói útherji

Bono til Al-Hilal (Staðfest)

Bono til Al-Hilal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Al-Hilal tilkynnti í kvöld kaupin á Marokkómanninum Yassine Bounou en hann kemur frá Sevilla á Spáni.
Sádi-arabíska félagið náði samkomulagi við Bounou á dögunum en hann lék sinn síðasta leik fyrir félagið í gær er liðið tapaði fyrir Manchester City í Ofurbikar Evrópu.

Al-Hilal greiðir 21 milljón evra fyrir markvörðinn og skrifaði hann í dag undir þriggja ára samning þar sem hann mun þéna tíu milljónir evra í árslaun.

Bounou hefur verið með betri markvörðum Evrópu síðustu ár og var meðal annars orðaður við Bayern München eftir heimsmeistaramótið í Katar er Marokkó kom sér í undanúrslit, en ákvað að klára tímabilið með Sevilla.

Lið Al-Hilal lítur ágætlega út en liðið er með Ruben Neves, Neymar, Sergej Milinkovic-Savic, Kalidou Koulibaly og fleiri öfluga leikmenn í sínum röðum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.