Nicolo Zaniolo til Aston Villa (Staðfest)
Ítalski sóknartengiliðurinn Nicolo Zaniolo er kominn til Aston Villa á láni frá Galatasaray.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25172 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Ítalski sóknartengiliðurinn Nicolo Zaniolo er kominn til Aston Villa á láni frá Galatasaray.
Nottingham Forest hefur tilkynnt að Gustavo Scarpa hefur gengið í raðir Olympiakos á lánssamningi út tímabilið. Þessi 29 ára brasilíski miðjumaður spilaði 10 leiki fyrir Forest á síðasta tímabili, eftir að hafa gengið í raðir félagsins frá Palmeiras í janúar. Það eru hæg heimatökin í þessum félagaskiptum til Olympiakos því eigandi félagsins Evangelos Marinakis er einnig eigandi Forest.
Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson er búinn að fá félagaskipti yfir til Cardiff. Cardiff fær Rúnar Alex á láni frá Arsenal út yfirstandandi tímabil.
Liverpool hefur staðfest kaupin á japanska miðjumanninum Wataru Endo frá Stuttgart. Hann kemur til Liverpool fyrir 16,2 milljónir punda og skrifar undir fjögurra ára samning. Endo fær treyju númer 3 hjá Liverpool.
Danska úrvalsdeildarfélagið Lyngby hefur staðfest að félagið sé búið að selja íslenska sóknarmanninn Alfreð Finnbogason til Eupen í Belgíu. Alfreð skrifar undir tveggja ára samning í Belgíu en sagt er að kaupverðið sé um 38,6 milljónir íslenskra króna.
Miðjumaðurinn efnilegi Romeo Lavia er búinn að skrifa undir samning við Chelsea og hefur formlega verið kynntur sem leikmaður félagsins.
Sóknarmaðurinn Andri Lucas Guðjohnsen hefur fært sig um set til Danmerkur þar sem hann er genginn í raðir Íslendingafélagsins Lyngby.
Al-Hilal tilkynnti í kvöld kaupin á Marokkómanninum Yassine Bounou en hann kemur frá Sevilla á Spáni.
Framarar lönduðu einum leikmanni undir lok gluggans en Íslendingurinn Albert Vésteinsson Östenberg kom til félagsins frá Öster í Svíþjóð.
Ítalska félagið Lazio hefur gengið frá samningum við Juventus um hinn 24 ára gamla Luca Pellegrini.
<i>„Þetta eru bestu mögulegu fréttir sem félagið gat fengið. Það er hátíðardagur,"</i> segir Roy Hodgson, stjóri Crystal Palace, um Michael Olise sem skrifaði í morgun undir nýjan samning við Crystal Palace. Búist var við því að Olise, sem er 21 árs, myndi fara til Chelsea sem hafði virkjað riftunarákvæði upp á 35 milljónir punda. Olise hafnaði hinsvegar Chelsea og heldur tryggð við Palace. <b>Sjá einnig:</b> <a href="https://www.fotbolti.net/news/17-08-2023/olise-hafnadi-chelsea-og-gerdi-nyjan-samning-vid-palace-stadfest" target="_blank">Olise hafnaði Chelsea og gerði nýjan samning við Palace (Staðfest)</a>
Gautaborg greindi frá því í dag að Kolbeinn Þórðarson væri genginn í raðir félagsins. Samningurinn gildir út tímabilið.
Michael Olise vængmaður Crystal Palace hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Steve Parish stjórnarformaður félagsins greindi frá þessu á Instagram. Búist var við því að Olise myndi fara til Chelsea sem hafði virkjað riftunarákvæði upp á 35 milljónir punda. Olise hafnaði hinsvegar Chelsea og heldur tryggð við Palace.
ÍBV hefur fengið til sín miðjumanninn Kevin Bru en hann er 34 ára, fæddur og uppalinn í Frakklandi en á 21 landsleik fyrir eyríkið Máritíus á Indlandshafi. Foreldrar hans eru þaðan. Hann kom upp úr unglingastarfi Rennes en hefur víða komið við í franska boltanum, meðal annars hjá Dijon. Á árunum 2014-2018 lék hann fyrir Ipswich Town á Englandi og spilaði í Championship-deildinni. Auk þess hefur hann spilað á Kýpur og í Rúmeníu. Síðustu ár hefur hann leikið í frönsku neðri deildunum, síðast fyrir C'Chartres sem er í sjöttu efstu deild.
Nýliðar Luton í ensku úrvalsdeildinni hafa samið við markvörðinn reynslumikla Tim Krul. Þessi 35 ára Hollendingur yfirgefur Norwich eftir fimm ára veru hjá félaginu. Krul hefur leikið fimmtán landsleiki fyrir Holland og segist spenntur fyrir því að taka þátt í því ævintýri sem sé í gangi hjá Luton.
Atalanta hefur fengið Charles De Ketelaere frá AC Milan. Hann kemur á lánssamningi með möguleika á kaupum síðar. Talið er að Atalanta borgi Milan 3 milljónir evra í lánskostnað og geti svo keypt hann fyrir 22 milljónir til viðbótar auk 4 milljóna í árangurstengdar greiðslur. Þá mun Milan fá 10% af næstu sölu leikmannsins. De Ketelaere er 22 ára sóknarmiðjumaður og mun væntanlega leika sinn fyrsta leik fyrir Atalanta á sunnudag, gegn Sassuolo í fyrstu umferð ítölsku A-deildarinnar. Hann kom til AC Milan frá Club Brugge fyrir 35 milljónir punda fyrir ári síðan en stóð alls ekki undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar.
Helena Hekla Hlynsdóttir mun klára tímabilið með ÍBV en hún kemur frá Selfossi.
Inter á Ítalíu hefur gengið frá kaupum á austurríska framherjanum Marko Arnautovic frá Bologna.
Spænski leikmaðurinn Santi Cazorla skrifaði í dag undir eins árs samning við spænska B-deildarfélagið Real Oviedo.
Hollenska stórliðið Ajax hefur fengið til sín sóknarmanninn Chuba Akpom frá Middlesbrough í Championship-deildinni. Þessi 27 ára leikmaður skoraði 29 mörk fyrir Boro í öllum keppnum og var markahæsti leikmaður ensku B-deildarinnar.