Fotbolti.net
18.08.23 - 19:29
Brynjar Ingi Erluson

Nicolo Zaniolo til Aston Villa (Staðfest)

Nicolo Zaniolo til Aston Villa (Staðfest)
Canon

Mynd: Aston Villa

Ítalski sóknartengiliðurinn Nicolo Zaniolo er kominn til Aston Villa á láni frá Galatasaray.
Zaniolo er 24 ára gamall og spilaði aðeins hálft tímabil með Galatasaray.

Hann kom frá Roma í byrjun febrúar og skoraði fimm mörk í tíu leikjum fyrir félagið.

Aston Villa hefur nú staðfest komu hans en hann kemur á láni út tímabilið. Enska félagið getur keypt hann um það bil 23 milljónir punda á meðan lánssamningurinn er í gildi.

Villa hefur gert spennandi hluti á markaðnum í sumar en er fjórði leikmaðurinn sem Unai Emery fær til félagsins á eftir Moussa Diaby, Youri Tielemans og Pau Torres.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.