Fotbolti.net
18.08.23 - 13:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Rúnar Alex í Cardiff (Staðfest)

Rúnar Alex Rúnarsson.

Rúnar Alex Rúnarsson.

Canon

Mynd: Cardiff

Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson er búinn að fá félagaskipti yfir til Cardiff.

Cardiff fær Rúnar Alex á láni frá Arsenal út yfirstandandi tímabil.
Cardiff er velskt lið sem leikur í ensku Championship-deildinni og tapaði fyrir Queens Park Rangers í annarri umferð, eftir jafntefli gegn Leeds í þeirri fyrstu.

Cardiff er þriðja liðið sem Arsenal lánar Rúnar Alex til síðan hann gekk í raðir félagsins 2020. Hann lék með Alanyaspor í Tyrklandi á síðasta tímabili og OH Leuven í Belgíu tímabilið þar á undan.

Rúnar Alex er 28 ára og hefur leikið 24 landsleiki fyrir Ísland.

„Ég er mjög spenntur. Ég talaði við Aron Einar og það fyrsta sem hann sagði við mig var: 'Farðu þangað'. Þetta er augljóslega stórt félag í Wales," segir Rúnar Alex. Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, spilaði með Cardiff frá 2011 til 2019.

Næsti leikur Cardiff er gegn Leicester á morgun.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.