Fotbolti.net
17.08.23 - 14:22
Elvar Geir Magnússon

Hodgson: Í dag er hátíðardagur fyrir félagið

Michael Olise.

Michael Olise.

Canon

Mynd: Getty Images

„Þetta eru bestu mögulegu fréttir sem félagið gat fengið. Það er hátíðardagur," segir Roy Hodgson, stjóri Crystal Palace, um Michael Olise sem skrifaði í morgun undir nýjan samning við Crystal Palace.

Búist var við því að Olise, sem er 21 árs, myndi fara til Chelsea sem hafði virkjað riftunarákvæði upp á 35 milljónir punda. Olise hafnaði hinsvegar Chelsea og heldur tryggð við Palace.

Sjá einnig:
Olise hafnaði Chelsea og gerði nýjan samning við Palace (Staðfest)
„Við höfðum áhyggjur, stærð Chelsea er mikil en ég vonaðist til þess að Michael myndi sjá að framtíð hans hér er mjög björt og við getum hjálpað honum að verða enn betri," segir Hodgson.

Olise gekk í raðir Palace frá Reading 2021 en hann var í yngri flokka starfi Chelsea áður en hann yfirgaf félagið fjórtán ára gamall.

„Ákvörðunin var hans og ég verð að hrósa Steve Parish (stjórnarformanni félagsins) og Doug Freedman fyrir það frábæra starf sem þeir hafa unnið. Þeir eru tveir Palace menn sem vilja allt það besta fyrir félagið. Að hafa misst Michael Olise eftir að hafa misst Wilfried Zaha hefði verið mjög slæmt."

Hodgson segir að hann hafi átt langt spjall við Olise í byrjun undirbúningstímabilsins.

„Ég átti gott spjall við hann. Ég gerði honum ljóst hversu mikið ég nýt þess að vinna með honum og hversu mikla virðingu ég hef fyrir honum sem leikmanni. Ég sagði honum frá því hverju ég tel að hægt sé að ná út úr honum. Ég sagði honum að mitt mat væri að það væri best fyrir hann að vera hér áfram en ég myndi ekki setja neina pressu á hann."

„Hann var með pressu á sér frá öllum áttum svo ég sagði honum hreinskilnislega mína skoðun. Ég er alltaf til staðar ef hann vill ræða það nánar. Við töluðum saman á hverjum degi eftir þetta samtal en ég sleppti því að spyrja hann út í framtíðina eða koma með frekari ráðleggingar. Hann vissi þegar hvað ég hefði að segja."

Olise er sem stendur á meiðslalistanum en hann meiddist aftan í læri með franska U21 landsliðinu á EM í sumar. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær hann snýr aftur á keppnisvöllinn.
Hodgson: Í dag er hátíðardagur fyrir félagið
Canon

Mynd: Instagram

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.