Fotbolti.net
18.08.23 - 11:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Wataru Endo í Liverpool (Staðfest)

Wataru Endo.

Wataru Endo.

Canon

Mynd: Liverpool

Liverpool hefur staðfest kaupin á japanska miðjumanninum Wataru Endo frá Stuttgart. Hann kemur til Liverpool fyrir 16,2 milljónir punda og skrifar undir fjögurra ára samning.

Endo fær treyju númer 3 hjá Liverpool.
Endo, sem er þrítugur, var fyrirliði Stuttgart, en hann bað þýska félagið um að leyfa sér að fara til að upplifa drauminn að spila með stóru félagi eins og Liverpool.

Liverpool ákvað að snúa sér að Endo eftir að Moises Caicedo og Romeo Lavia höfnuðu félaginu. Þeir sömdu báðir við Chelsea frekar.

Gera má ráð fyrir því að Endo sé ekki eini miðjumaðurinn sem Liverpool kaupir áður en glugginn lokar.

Sjá einnig:
Hver er Wataru Endo? - Óvænt kaup hjá Liverpool
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.