FRÉTTIR03.08.2023, 17:00
Sheffield United hefur keypt varnarmanninn Auston Trusty frá Arsenal, þessi 24 ára bandaríski landsliðsmaður var hjá Birmingham City á lánssamningi á síðasta tímabili þar sem hann var valinn leikmaður ársins.
FRÉTTIR03.08.2023, 16:30
FH hefur tilkynnt um komu þýska varnarmannsins Rachel Avant til félagsins.
Hún kemur til FH eftir að hafa síðast verið á mála hjá Nantes í Frakklandi. Hún hefur spilað í Frakklandi frá árinu 2020 en þar áður lék hún með Soyaux.
FRÉTTIR03.08.2023, 13:30
Sunderland tilkynnti í gær um komu Nathan Bishop frá Manchester United. Kaupverðið er óuppgefið.
Nathan Bishop er 23 ára enskur markvörður sem gekk í raðir Man Utd árið 2020. Hann lék ekki keppnisleik með United en var fjórum sinnum á bekknum á síðasta tímabili.
Sunderland er í ensku Championship deildinni.
FRÉTTIR03.08.2023, 10:10
Manuel Lanzini og Lucas Moura, fyrrum leikmenn í ensku úrvalsdeildini, hafa samið við sín fyrrum félög í Suður-Ameríku.
Argentínski miðjumaðurinn Lanzini og brasilíski vængmaðurinn Moura yfirgáfu West Ham og Tottenham í sumar. Báðir eru 30 ára gamlir.
FRÉTTIR03.08.2023, 08:00
Þýski sóknarmaðurinn Deniz Undav mun spila með Stuttgart á láni frá Brighton út tímabilið en þetta staðfest enska félagið í gær.
FRÉTTIR03.08.2023, 07:30
Jóhann Þór Arnarsson er genginn til liðs við Þrótt Vogum frá Keflavík.
FRÉTTIR02.08.2023, 18:19
KA hefur landað unglingalandsliðsmanninum Árna Veigari Árnasyni frá Hetti.
FRÉTTIR02.08.2023, 16:37
Þorri Stefán Þorbjörnsson er genginn í raðir danska félagsins Lyngby. Á þessu vakti umboðsmaður hans, Halldór Ragnar Emilsson, athygli á Instagram reikningi sínum í dag.
Lyngby kaupir Þorra frá FH þar sem hann hefur verið í eitt og hálft ár en hann kom til FH frá Fram. Hann lék sinn fyrsta og keppnisleik með FH gegn einmitt Fram í júní.
FRÉTTIR02.08.2023, 07:00
Varnarmaðurinn Mohammed Salisu er genginn til liðs við Monaco frá Southampton. Þessi 24 ára gamli Ganverji gerir fimm ára samning við félagið.
FRÉTTIR02.08.2023, 06:00

Dalvík/Reynir hefur nælt í Andrei Apostu en hann er 21 árs gamall Rúmeni. Hann gerir samning út tímabilið.

FRÉTTIR02.08.2023, 06:00

Daníel Gylfason er genginn til liðs við Árbæ frá Keflavík.

FRÉTTIR02.08.2023, 06:00

Fram hefur nælt í tvo nýja leikmenn til að styrkja hópinn fyrir endasprettinn í Lengjudeild kvenna sem framundan er.

FRÉTTIR01.08.2023, 22:44

Þorkell Þráinsson er mættur aftur í Ægi. Hann er fyrrum fyrirliði félagsins og leikjahæsti leikmaður liðsins frá upphafi.

FRÉTTIR01.08.2023, 18:20

Sadio Mane er genginn til liðs við Al-Nassr í Sádí-Arabíu frá Bayern Munchen.

FRÉTTIR01.08.2023, 17:57

Hinn 19 ára gamli Lesley Ugochukwu er genginn til liðs við Chelsea frá Rennes í Frakklandi.

FRÉTTIR01.08.2023, 17:30
QPR í ensku Championship deildinni hefur krækt í miðjumanninn Jack Colback.
Colback kemur á frjálsri sölu en hann fékk ekki áframhaldandi samning hjá Nottingham Forest í sumar.
FRÉTTIR01.08.2023, 15:31
Grindavík hefur staðfest það að Brynjar Björn Gunnarsson sé tekinn við þjálfun karlaliðs félagsins af Helga Sigurðssyni sem sagði starfi sínu lausu í gær.
Brynjar Björn skrifar undir samning við Grindavík sem gildir út næsta tímabil. Hann mun stýra liðinu gegn Vestra á morgun.
FRÉTTIR01.08.2023, 15:28
Markvörðurinn Ingibjörg Valgeirsdóttir hefur gengið í raðir Fylkis frá Þrótti Reykjavík.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fylki í dag en hún fyllir í skarðið fyrir Tinnu Brá Magnúsdóttur, einn efnilegasta markvörð landsins, sem er á leið til Bandaríkjanna í háskóla.
FRÉTTIR01.08.2023, 15:00
Josh Maja, ein af stjörnunum í sjónvarpsþáttaseríunni 'Sunderland 'Till I die' sem vakti mikla athygli á Netflix, er kominn aftur til Englands eftir nokkur ár í Frakklandi.
Maja er 24 ára og fæddur á Englandi en hann á einn landsleik að baki fyrir Nígeríu.
FRÉTTIR01.08.2023, 06:00
Lilja Davíðsdóttir Scheving mun klára tímabilið með Fram í Lengjudeildinni en hún kemur á láni frá Gróttu.