Ingibjörg í Fylki (Staðfest) - Tinna Brá á leið út í háskóla

Ingibjörg Valgeirsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ingibjörg Valgeirsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn Ingibjörg Valgeirsdóttir hefur gengið í raðir Fylkis frá Þrótti Reykjavík.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Fylki í dag en hún fyllir í skarðið fyrir Tinnu Brá Magnúsdóttur, einn efnilegasta markvörð landsins, sem er á leið til Bandaríkjanna í háskóla.

Ingibjörg, sem er fædd árið 1998, hóf meistaraflokksferil sinn aðeins 14 ára gömul er hún lék með Sindra í 1. deildinni árið 2012 en síðan þá hefur hún spilað 123 leiki í deild- og bikar.
Hún spilaði síðast með KR-ingum árið 2021 í Lengjudeildinni en þá lék hún alla deildarleiki liðsins. Hún var ekki í fótbolta í fyrra en fór svo í Þrótt fyrir þetta tímabil. Hún hefur verið varamarkvörð í Þrótti fyrir Írisi Dögg Gunnarsdóttur.
Ingibjörg, sem var á sínum tíma viðloðandi A-landsliðið, skrifar undir samning við Fylki út þetta tímabil. „Við Fylkismenn getum glaðst yfir þeim tíðindum að semja við leikmenn sem eru staðráðnir í því að hjálpa liðinu upp í deild þeirra bestu!" segir í tilkynningu Fylkis.
Fylkir er sem stendur í öðru sæti Lengjudeildarinnar og er að berjast um það að komast upp.

Tinna Brá Magnúsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð